Tálknfirðingar fjarri heimabyggð

Halló öllsömul!

02.06.2009 00:11:31 / eydish

DRULLU RATLEIKUR !!!

Elskulegu vinir!

Laugardaginn 6. júní verður haldinn Tálknfirðingahittingur á Tálknafirði!!! 
Þessi hittingur verður öðruvísi en allir hittingar hafa verið... það er 17 ára aldurstakmark & mega Tálknfirðingar taka eins MARGA VINI með sér & þeir vilja!!

Það kostar 400 kr fyrir fólk sem drekkur áfengi & aðeins 200 kr fyrir fólk sem drekkur ekki. 
Fólk verður merkt hvort það megi drekka eða ekki drekka & munu fyrirliðar liðanna sjá til þess að þeir fari eftir því. 

Fólk verður að mæta í :
Fötum sem mega skítast út
Skóm sem mega blotna
Góðum nærbuxum

*Muna að láta vini sína vita af því*


Mæting klukkan 3 á Lækjartorg. 


Allir að skella sér vestur!!!


Frá seinasta ratleik.... sem var í Reykjavíkinni.



» 0 hafa sagt sína skoðun

10.09.2008 20:47:47 / eydish

Are you in or are you out?


KVEÐJU PARTÝ !!!!

Eydís & Freymar eru að fara í burtu í 8 mánuði að ferðast til Thaílands, Ástralíu og Nýja Sjálands... væri gaman að sjá sem flesta!



80shuldaaaaaaa.jpg picture by 80s

ÞAÐ ERU ÖLLUM GÖMLUM SEM NÝJUM TÁLKNFIRÐINGUM BOÐIÐ !!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.03.2008 23:29:08 / eydish

Hey hó!


Góðan daginn, 
mínir yndislegu Tálknfirðingar! 

Ég sat í vinnunni minni í dag og er komin með geggjaða hugmynd af nýjum hitting, sem gæti vel toppað Ratleikinn fræga. 
Nú þarf ég að fá almenna KOSNINGU hvenar fólk vill hafa þennan hitting þá... því ég vil ekki halda hitting nema að minnst 20 manns mæti!!! 

Fyrsti kostur:
Laugardagurinn 5. apríl - henntar mörgum, þar sem flest allir eru búnir að fá útborgað!

Annar kostur: 
Laugardagurinn 12. apríl - ef fólk er að vinna hina helgina... 

Þriðji kostur: 
Laugardagurinn 26. apríl - svoldið seint í mánuðinum og engin á pening örugglega!


KJÓSIÐ ...það er ekki erfitt og kostar ekki neitt. 


Við verðum að bæta þetta upp... of lélegar mætingar upp á síðkastið! 




» 15 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 20:48:37 / eydish

HITTINGURINN MIKLI


Þá er komið að því... það verður hittingur á morgun !!! VÚHÚ

Byrjað verður á morgun klukkan 3 og er mæting á Hólmaslóð á Reykjavíkurhöfn... eða þar í kring! Þetta er Tónlistarhúsið mikla og kallast HELLIRINN!! Það verður síðan upplýst hvað verður gert þegar á staðin er komið :D

(þetta er stóra hvíta húsið rétt hjá beitningaskúrunum öllum... þar sem 25 ára afmælið hans Helga var haldið á sínum tíma)

PARTÝ-ið verður síðan heima hjá þeim undir fögru Ólu, Erlu og Bjössa... þau er falleg systkinin!
Mæting verður þangað um 9 leitið og eiga flest allir að vita það að þau búa í Löngubrekku í Kópavogi... og má hringja í mig ef þið finnið þetta ekki!

ÞEMAÐ verður Glimmer fyrir stelpur og sólgleraugu eða bindi hjá strákum!! :D
...einnig verður dreyft til ykkar þema, þegar í party-ið er komið, svo því meira sem við drekkum, því fyndnara verður það!!!!

Hlakka til að sjá alla.... :D


80s hulda



» 5 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 16:32:35 / eydish

Hittingur fólk.


Hittingur á morgunn, auglýsi betur í kvöld..... fylgisti með!!!! :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 00:43:05 / eydish

Hvað segir fólkð ?!


Halló HA HALLÓ !!! ...getiru komið hér í kvöld ?


Jæja jæja... nú er komið að því, það á loksins að fara að halda hitting!!! Ég er búin að vera með tilbúin hitting síðan í ágúst, þar sem ég og Hjalti byrjuðum að skipuleggja hann í sundlauginni. Hjalti, hafðu hljótt um það sem þú veist, þetta á að vera óvænt.

Ég stefni á að hafa hittingin laugardaginn 16. febrúar svo vonandi eru allir lausir :D


Allir að setja upp brosið, því það er alltaf gaman þegar Tálknfirðingar koma saman!


Eru allir sáttir ?!?!



Eydís Hulda
-stjarnan-

» 5 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 17:07:03 / Óla

Tálknfirðingar nær og fjær...

Þá er þorrablótið afstaðið en það var haldið í Glaðheimasalnum í Kópavogi að þessu sinni ogkom það bara vel út fannst mér, vona ég að allir hafi skemmt sér jafn vel og ég. Það er nú ekki alveg laust við það að nefndin hafi verið fremur stressuð á tímabili en allt fór þetta nú vel. Geir sá um veislustjórn og söng, stóð hann sig með prýði í borðbæninni en það er ekki hægt að byrja þorrablót nema heyra hann fara með þennan skemmtilega söng og vil ég fyrir hönd fráfarandi nefndar þakka honum fyrir sitt framlag. Hún Palla Stína setti svo saman annálinn (takk kærlega fyrir það Palla) en þar sem hún Sara ákvað að vera stödd erlendis á meðan þessi skemmtun fór fram varð víst að finna annan aðila til að lesa hann og varð það hann Pétur sem tók það hlutverk að sér, stóð hann sig vel í því hlutverki. Óli Sveinn sá svo um skemmtiatriðin og fékk með sér þau Árna, Eydísi og Daníel til að leika í leikþætti. Ekki er nú að spyrja að því að þetta var hin mesta skemmtun, þökkum þeim einnig fyrir sitt framlag. Óli las svo upp topp 10 lista yfir þá hluti sem Tálknfirðingar verða að gera áður en þeir deyja... já eða flytja á Patró !! Þetta var snilldin ein (spurning hvort hann sé til í að skella listanum hér inn einhvern tíman við tækifæri).  Samkvæmt hefðinni voru að sjálfsögðu einnig seinni partar, hann Kristján Hannesson skellti saman fyrripörtum (þökkum honum fyrir það;) en fólk fékk svo tíma yfir matnum að koma með einhverja góða seinniparta, margir voru þeir góðir og svo voru sumir ekki alveg jafn góðir hehe... Hún Sirrý okkar Pétursdóttir vann þá keppni og fékk veglegan vinning fyrir. En það var reyktur silungur frá Tungusilung, harðfiskur frá Særöst og svo gjafa askja frá Villimey með kremum og varasalva. Við skelltum líka upp smá happdrætti svona til gamans, hlutu Jóna, Maja, Badda, Jón Gísla og (Björgvin Sigurjóns) ... þá vinninga sem í boði voru (harðfiskur frá Særöst og krem frá Öllu).  Í fyrra voru veittir tveir bikarar í fyrsta skipti og ákváðum við að halda því áfram. Annar var fyrir að stuðla að samheldni brottfluttra Tálknfirðinga og var það að sjálfsögðu hún Eydís Hulda sem fékk þau en hún er búin að standa sig frábærlega með Myspace síðunni sem og að undirbúa hittinga. Hinn var fyrir góða mætingu og ákváðum við að Steindór og Unnur myndu fá hann sameiginlega en þau hafa verið sérlega dugleg að sækja þessar samkomur. Það hefði nú átt að koma fram í gær að hann Helgi Dagur gaf bikarana sem veittir voru en í öllu stressinu gleymdist vist að taka það fram en takk engu að síður fyrir þitt framlag Helgi.  Ný nefnd var krýnd í lokin og voru valin þau Ingólfur Helgason og Eydís Hulda, þau eiga svo sannarlega eftir að standa sig með prýði og höfum við fulla trú á þeim til að gera þetta algjörlega frábært í alla staði.  Hljómsveitin Ford `57 lék svo fyrir dansi fram eftir nóttu og var ekki annað að sjá en fólk hafi skemmt sér með prýði á dansgólfinu. Bæði salurinn og hljómsveitin voru mjög góð og get ég vel mælt með þeim í næstu samkomum.

 

Sérstakar þakkir fá styrktaraðilar blótsins en þeir sem veittu okkur aðstoð voru Tungusilungur, Villimey, Særöst, Sterkur og Bergdís.

 

Takk Pétur fyrir gott og skemmtilegt samstarf.

 

Takk allir fyrir komuna og að gera þetta að þeirri skemmtun sem þetta var.

 

Takk fyrir mig

kv. Óla


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 00:16:48 / Óla

Þorrablót á Tálknafirði

Þorrablótið á Tálknafirði

verður haldið 26. janúar næstkomandi.

 

Til að auðvelda brottfluttum Tálknfirðingum og öðrum höfum við í þorrablótsnefnd  haft samband við allflesta gistihúsaeigendur á  Tálknafirði og hafa þeir allir tekið vel í að gefa góða

 afslætti af gistingu þessa helgi,

einnig höfum við haft samband við Sæferðir og bjóða þeir

40 % afslátt af ferðum með Baldri

yfir Breiðafjörð fyrir þorrablótsgesti. 

Gistiheimili á Tálknafirði: 

Gistiheimilið Bjarmaland         s: 8619749

Gistiheimilið Hamraborg         s: 4562514

Gistiheimilið Skrúðhamrar      s: 4560200

Orlofsíbúð Túngötu 21           s: 4562534

Sumarhúsabyggð Tálknaf.      s:  8440145/8614986 

Pöntunar sími Sæferða    s: 4381450  

Fyrir hönd þorrablótsnefndar      

 Vignir Arnarson  s: 8610381

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 23:32:52 / eydish

Þorrablót 2. febrúar

Þessi auglýsing birtist á heimasíðu Erlu Dísar nú fyrr í dag.

Þá er loksins komið að því!  Þorrablót brottfluttra Tálknfirðinga verður haldið laugardaginn 2. febrúar n.k.  Í ár verður blótað í Glaðheimasalnum, Álalind 3, 201 Kópavogi.Að venju verður boðið upp á fjölbreytta og þjóðlega dagskrá og fyrsta flokks veitingar.  Hljómsveitin „Ford ‘57“ leikur fyrir dansi og tryggir fjör fram eftir nóttu. 

Veislustjórn:  Snæbjörn Geir Viggósson

Miðaverð kr 4.700,-Húsið verður opnað kl 19:00 og hefst borðhald stundvíslega kl. 20:30

Vinsamlegast gerið miða- og borðapantanir fyrir 29.janúar hjá:

Pétur Sigurðsson                  862-0162 / petursig@gmail.com
Guðrún Ólöf Þórsdóttir       894-8839 / gudrunot@gmail.com

Við hvetjum alla þá sem lúffu og ullarsokki geta valdið að mæta. Notum tækifærið og tökum þátt í skapa stærsta „hittingi“ ársins.

 Það kom fram á heimasíðunni heimsfraegirtalknfirdingar.is að búast má við mjög vönduðu og vel leiknu skemmtiefni á Þorrablótinu. Undirritaður náði að vista hluta af efninu áður en heimasíðunni var lokað, vegna fjölda áskorana eftir nokkur alvarleg atvik hláturskasta...

Topp 10 listinn yfir atriði sem Tálknfirðingar verða að gera áður en þeir deyja – eða flytja á „Patró“.

Nr. 10 -  Að hafa farið í kaffi til Stebba á Lambeyri... og trúað lygasögunum hans J

Nr. 9 – Að hafa fengið hellur í eyrun af því að Jörgína hló svo hátt J 

Meira efni náðist því miður ekki í þessu niðurhali en undirrituðum tókst þó að lesa leikþátt sem verður vaflaust frumsýndur á „blótinu“ þar mun hinn mikli misskilningur um hina meintu olíuhreinsunarstöð vera leiðréttur.Hlökkum til að sjá ykkur öll.

Kveðja – Lappi.


» 9 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 22:15:19 / karvelio

Gleðilegt árið

Gleðilegt ár öllsömul!

 

Ég vona að allir hafi notið hátíðanna til hins ítrasta og ég vil koma á framfæri öfund til þeirra sem fóru vestur, ég saknaði þess sárlega. 

 

Annars er kominn tími á að lyfta upp þessum félagsskap aðeins upp og ég auglýsi eftir fólki sem vill hjálpa mér og Eydísi (að henni óspurðri) að koma saman Hitting. Ég ætla að vera með aftur í þessu þó ekki nema til að halda þessu gangandi, mér þykir gaman að hitta skemmtilegt fólk einsog allir Tálknfirðingar eru :D

 

Hver og hver og vill?? 


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 00:35:31 / eydish

HALLÓ ?!?!?!?!

 

ER EINHVER SEM GETUR HALDIÐ PARTY Á LAUGARDAGINN FYRIR HITTIG?!?!?!?!

...Er með GEGGJAÐ hitting tilbúin ef einhver bíður sig fram, látið þetta berast!!!!

 

...án djóks, snilldar hittingur tilbúin...

 

Kv: Eydís!!

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 15:58:17 / karvelio

Stórfrétt

Í gær fæddist lítill Árnýjarson og Magga. Hann kom í heiminn 14,5 merkur og 51cm.

 

Fögnum þessari viðbót við Tálknfirska kynstofninn og óskum þeim til hamingju með litla sólargeislann :D 

 

Munið bara að ef þið skálið um helgina, takið eina skál þeim til handa.

 

Karvelio. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 20:42:05 / eydish

ATH ATH ATH

 

Þar sem party-ið átti að vera... er ekki lengur í boði, svo það verður enginn hittingur um helgina nema einhver er tilbúin að bjóða sig fram að halda það!

 

:(


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 15:00:56 / eydish

HITTINGUR!!!!



Halló, halló!

Þá er komið á hreint hvernig þetta verður, því miður þar sem ég verð að vinna næstu 2 helgar getur hittingurinn ekki verið fyrr en....

20. október

Vonandi getið þið sem verið að vinna þennan dag beiðið um frí þar sem ég set þetta inn með ansi góðum fyrirvara.  ;)

Ég er búin að redda húshaldi fyrir veisluhöldin og það sem verður gert yfir daginn mun verða upplýst seinna og er gott að fylgjast vel með8)

Vonandi eru allir sáttir.... þetta á nefnilega eftir að vera góður hittingur!!!


KAMMÓN, LIVE A LITTLE !!!!


Eydís Hulda


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 18:54:08 / eydish

Hvað segir lýðurinn ?!


Góðan daginn, hvað segja bændur?

Ég er búin að vera að plana hitting og það er erfitt að toppa seinasta hitting sem ég sá um... það er pressa í gangi og er ég buin að vera djúft hugsi í allt sumars, ótrúlegt en satt!

Ég var að spá hvað fólki finnst um fyrstu helgina í október, sem sagt Laugardagurinn 6. október. ?!?

Er fólk game í að hafa RISA hitting þá? 8)

...ef eitthver er tilbúin í að halda party-ið þá er það náttúrulega bara frábært, annars læt ég Fannar "ofurmenni" lemja eitthvern þangað til við finnum pláss!

Eru ekki allir sáttir ?!



p.s. Það sem ég er að plana verður afhjúpað seinna:klikk:



Eydís Hulda
-ó yeah baby!

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 32623
Dagsetning
10. febrúar 2012